Persónuverndarstefna

MiniMax virðir persónuvernd þeirra sem heimsækja vefinn minimax.is. Hér kemur fram hvaða upplýsingum er safnað, hvers vegna og hvernig farið er með þær, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Fyrirspurnir

Þegar þú sendir okkur fyrirspurn í gegnum formið á vefnum fáum við nafn þitt, netfang, símanúmer, nafn fyrirtækis (ef þú gefur það upp) og skilaboðin. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að svara fyrirspurninni og veita þá þjónustu sem þú biður um. Þær eru sendar okkur í tölvupósti í gegnum þjónustuaðilann Resend og eru ekki seldar né afhentar öðrum.

Vafrakökur og mælingar

Vefurinn notar ekki auglýsinga- eða rakningarkökur. Við notum Cloudflare Web Analytics til að telja heimsóknir. Sú mæling notar ekki vafrakökur og safnar ekki upplýsingum sem auðkenna þig.

Kortið á síðunni Hafa samband er frá Google Maps og hleðst aðeins ef þú velur að birta það. Þá gilda skilmálar og persónuverndarstefna Google.

Varðveisla

Fyrirspurnir eru varðveittar eins lengi og þörf er á til að sinna erindinu og samskiptum við þig, eða eins og lög krefjast.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt. Sendu okkur línu á gunnar@minimax.is. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Ábyrgðaraðili

MiniMax, Engihjalli 8, 200 Kópavogur. Netfang: gunnar@minimax.is.